Æfingar í Laugardalslaug - aðalinngangur lokaður Prentvæn útgáfa
Sunnudagur, 15. apríl 2012 23:09

Unnið er að miklum endurbótum á útilauginni í Laugardalslaug og vegna framkvæmda verður lokað í þrjá daga  –  frá mánudegi 16.apríl til miðvikudags 18.apríl fyrir almenning.

Æfingar verða í innilaug á venjulegum tímum en athugið að aðalinngangurinn er lokaður og því er gengið inn um gamla innganginn við Pylsuvagninn.