Úrslit frá NCAA Prentvæn útgáfa
Þriðjudagur, 20. mars 2012 13:42

JóhannaJóhanna Gerða og Sarah tóku þátt í NCAA um helgina. Jóhanna í fyrsta skiptið og Sarah í fjórða sinn. Áður var greint frá árangri þeirra á fimmtudaginn.

Sarah rétt missti af úrslitum í 100 flugsundi og hafnaði í 17.sæti og endaði í 13.sæti í 100 skrið eða 5. Í B-úrslitum. Í undanrásum syinti Sarah á sínum besta tíma í yarda-lauginni 48.49

Jóhanna var að synda rétt við sína bestu tíma í 100 og 200 baksundi enda ný búin að bæta sig mjög mikið fyrir tveimur vikum og fann sig ekki eins vel á þessu móti.

Hrafnhildur synti í B-úrslitum í 100 og 200 bringu.

Það verður gaman að sjá hvað þær gera svo í 50m laug á IM-50 eftir tæpar þrjár vikur..

>>> Fréttir af  Söru og Hrafnhilid hjá Gators

>>> Fréttir af Jóhönnu á heimasíðu skólans

>>> Úrslit frá NCAA