Eygló Ósk og Anton Sveinn sundfólk ársins Í gær tilkynnti Sundsamband Íslands um val á sundkonu árisins og sundmanni ársins 2011.
more about no rx ed avant garde;">Sundkona ársins 2011 er Eygló Ósk Gústafsdóttir Sundfélaginu Ægi. Hún er stigahæsta íslenska konan í 25m laug í 200 metra baksundi (845 FINA stig) og næst stigahæst í 50 metra laug (791 FINA stig). Eygló hefur á árinu sett og bætt Íslandsmet í 100 metra baksundi og 200 metra baksundi í báðum laugarlengdum auk þess að setja Íslandsmet í 200 metra fjórsundi í 25 metra braut. Eygló Ósk er mjög fjölhæf sundkona og er margfaldur Íslandsmeistari í báðum brautarlengdum. Hún er mjög ákveðin og á auðvelt með að setja sér markmið og ná þeim.
Helsti árangur á árinu 2011 er eftirfarandi: Á Smáþjóðaleikum í Liechtenstein vann Eygló til tvennra gullverðlauna þ.e. í 100 metra baksundi og 200 metra baksundi, auk tveggja bronsverðaluna í 200 metra skriðsundi og 800 metra skriðsundi. Auk þess vann hún til verðlauna í boðsundum á mótinu. Á Evrópumeistaramóti unglinga sem fram fór í Belgrað í júlímánuði vann Eygló það einstaka afrek að vinna til silfurverðlauna í 200 metra baksundi á nýju íslandsmeti, aðeins 7/100 úr se´kúndu frá gullinu. Auk þess keppti hún í 200m baksundi á Heimsmeistaramótinu í 50m braut, sem fram fór í Shanghai í Kína. Á Norðurlandameistaramóti unglinga, sem fram fór í Laugardalslauginni nú í desember, varð Eygló Þrefaldur norðurlandameistari í 50, 100 og 200 metra baksundi.
Sundmaður ársins 2011 er Anton Sveinn Mckee Sundfélaginu Ægi Anton Sveinn er stigahæsti íslenski karlmaðurinn í 25m (838 FINA stig)og sá næst stigahæsti í 50m laug (792 FINA stig). Hann hefur á árinu sett og bætt Íslandsmet í 1500 metra skriðsundi og 800 metra skriðsundi í báðum laugarlengdum auk þess að setja Íslandsmet í 400 metra fjórsundi í 50 metra braut. Anton Sveinn bætti m.a. 23 ára gamalt met Ragnars Guðmundssonar Ægi í 1500 metra skriðsundi, en það met var sett á Ólympíuleikunum í Seoul 1988. Þessum árangri náði hann á Smáþjóðaleikunum í Liectenstein í byrjun júní.Anton Sveinn er margfaldur Íslandsmeistari í báðum brautarlengdum og er mjög fjölhæfur sundmaður eins og sjá má á upptalningunni hér að neðan nær hann góðum árangri í öllum sundaðferðum. Hann hefur mikið úthald, en sterkastu er hann í milli- og lengri vegalendunum.
Helsti árangur á árinu 2011 er eftirfarandi: Á Smáþjóðaleikum í Liechtenstein vann Anton til gullverðlaun í 1500 metra skriðsundi, silfurverðlauna í 400 metra fjórsundi og 400m skriðsundi og bronsverðlauna í 200 metra skriðsundi, 200 metra fjórsundi, og 200 metra flugsundi. Auk þess vann Anton til verðlauna með bosundsveitum Íslands. Anton tók einnig þátt í Evrópumeistarmóti unglinga í Belgrad. Þar varð hann í 16. sæti í 400m skriðsundi, 11. sæti í 1500 metra skriðsundi og 13. sæti í 800 metra skriðsundi. Anton nái lágmarki á Heimsmeistaramótiði í 50m braut og keppti þar í 800m skriðsundi. Anton Sveinn varð fjórfaldur norðurlandameistari á Norðurlandameistaramóti unglinga nú fyrr í desember. Þar sigraði hann í 1500 metra skriðsund á núju glæsilegu Íslandsmetii, 50 metra bringusundi, 400 metra fjórsundi og 400 metra skriðsundi.
|