Anton Sveinn rétt við sinn besta tíma á HM Prentvæn útgáfa
Þriðjudagur, 26. júlí 2011 08:48

AntonAnton Sveinn Mckee synti 800 metra skriðsundi í Shangahi í nótt.  Hann kom í mark á tímanum 08:17, sale 83 sem er rétt við Íslandsmetið hans sem hann setti á EMU fyrir þremur vikum .  Enn Anton hefur bætt sig gríðarlega mikið í þessari grein í sumar og hefur sýnt sig og sannað að hann er framtíðarafreksmaður í sundi.  Þetta er því frábært tækifæri fyrir hann að fá að keppa við þá bestu í heiminum í dag.

Mikil spenna og hörð keppni ríkir í úrslitum og hvet ég alla sem hafa aðgang að Eurosport að kíkja á úrslitasundin og horfa á hvernig þeir bestu í heiminum gera þetta