Úrslit frá EMU |
Miðvikudagur, 06. júlí 2011 22:07 |
Anton Sveinn McKee og Eygló Ósk Gústafsdóttir keppa nú á Evrópumeistaramóti Unglinga í Belgrad. Mótið hófst í dag. Anton Svenn synti 400 m skriðsund á 3.59.48 sem er bæting um hálfa sekúndu og hafnaði í 16. sæti. Til þess að komast áfram í úrslit þurfti að synda 3:56.. Eygló Ósk keppti í 200m baksundi. Í Undanrásum um morguninn var hún fjórða á 2:16.75 og í undanúrlitum eftir hádegi gerði Eygló sér lítið fyrir og var fyrsta inn í úrslit rétt við Íslandsmetið sitt er hún synti á 2.15.48. |