AMÍ 2011 |
Þriðjudagur, 21. júní 2011 22:42 |
Glæsilegur hópur, view samtals 45 sundmenn halda af stað norður yfir heiðar á morgun og á fimmtudag til þess að keppa á Aldursflokkameistaramóti Íslands (AMÍ). Mótið hefst á fimmtudag 23.06 Upphitun klukkan 15:00 og mótið klukkan 16:30 og keppt verður í löngu greinunum 400sk fyrir 12 ára og yngri og 800 og 1500 fyrir 13 ára og eldri.
Föstudagur 24.06 Laugardagur 25.06 Sunnudagur 26.06 Veðurspáin lofar ekki voðalega góðu það er spáð ágætis veðri á fimmtudaginn 9°C og sól enn svo á að rigna frá föstudegi og fram á sunnudag. Munið því að taka með ykkur hlý föt , húfu, vettlinga, regnföt, vatnshelda skó og ULLARSOKKA… það er ekkert verra enn að vera blautur á tánum. Eins og Emil í kattholti sagði þegar hann festst í glugganum með hausinn úti í rigningunni að þá fengi hann ekki kvef því hann hefði ekki blotnað á tánum.. Enn við stefnum að sjálfsögðu á að vinna AMÍ, hvort sem það verður rigning og rok eða sól og blíða. Þá er alltaf gaman að keppa á AMÍ á Akureyri. ÁFRAM ÆGIR. |