Unglingalandslið á leið til Lux |
Fimmtudagur, 28. apríl 2011 13:50 |
Rebekka, online Paulina og Sveinbjörn lögðu af stað í morgun með Unglingalandslið SSÍ á Alþjóðlegt mót í Luxembourg. Unglingalandsliðið hefur farið á þetta mót í mörg ár og margir landsliðmenn stigið sín fyrstu skref í landsliðverkefnum á þessu móti. Alls keppa 12 keppendur frá Íslandi, enn auk þeirra þriggja keppa Kristinn og Daníel úr Fjölni, Kolbeinn, Hrafn og Orri úr SH, Ólöf og Jóhanna frá ÍRB, Salome frá ÍA og Jón Ingi frá UMSB. Þjálfarar með í för eru þau Mladem og Ragga Run. Krakkarnir komu saman og tóku létta sundæfingu í gærkvöldi og lögðu svo af stað til Amsterdam í morgun, svo tekur við rútuferð til Luxembourg. Keppni hefst svo á morgun. Á heimasíðu mótsins má sjá keppendalista og úrslit. Krakkarnir munu fá góða keppni enn eiga jafnframt góða möguleika á að vinna til verðlauna. Það verður gaman að fylgjast með þessum unga og efnilega hóp. Góða Ferð. Heimasíðu Mótsins: http://swimming.lu/ |