Niðurstöður aðalfundar 2022 |
|
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson
|
Miðvikudagur, 30. mars 2022 19:56 |
Sundfélagið Ægir hélt Aðalfund félagsins þann 29. mars síðastliðinn.
Megin niðurstöður fundarins voru eftirfarandi:
- Helgi Þór Þórsson var kjörinn formaður félagsins til næstu 2ggja ára.
- Ásgeir Ásgeirsson, Hildur Björk Kristjánsdóttir og Júlía Þorvaldsdóttir halda áfram í stjórn til eins árs.
- Arnfinnur Jónasson kemur nýr inn í stjórn til 2ggja ára.
Guðni Einarsson hverfur úr stjórn og þakkar félagið honum afar vel unnin störf síðustu 2 ár.
- Á fundinum var Kjartan Birgisson kjörinn áheyrnarfulltrúi foreldra fram að næsta Aðalfundi.
- Fimm fulltrúar úr röðum foreldra voru tilnefndir í foreldraráð félagsins.
- Kjör fulltrúa í SRR var vísað til nýrrar stjórnar.
- Ákvörðun um félagsgjald var vísað til nýrrar stjórnar.
- Skoðunarmaður reikninga var kjörinn Hólmsteinn Ingi Halldórsson og Pála Þórisdóttir til vara.
Félagið óskar nýjum formanni og öðrum kjörnum fulltrúum velfarnaðar í starfi fyrir félagið.
|