Skráning hafin á næstu Gullfiskanámskeið |
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson | ||
Mánudagur, 25. nóvember 2019 22:22 | ||
Kennt er á þriðjudögum og fimmtudögum í innilaug Breiðholtslaugar í 30 mínútur í senn í 12 vikur. Námskeiðin eru fyrir börn frá 4ra ára og eldri sem eru byrjendur í sundi. Á námskeiðunum fá börnin mikilvægan grunn sem nýtist sérstaklega vel fyrir skólasund og til áframhaldandi sundþjálfunar í Bleikju- og Laxahópum Ægis. Nánari upplýsingar um námskeiðin má finna hér í æfingartöflu félagsins. Verðið er kr. 23.900,- fyrir 12 vikur og fá systkini 10% afslátt. Skrá má börnin á skráningarvef félagsins hér. Ath. að frístundastyrkur Reykjavíkurborgar fyrir árið 2020 verður ekki aðgengilegur fyrr en eftir áramót og er hann einungis nothæfur börnum frá 6 ára aldri. Takmarkaðaður fjöldi er í hvern hóp og því borgar sig að skrá snemma :)
Stjórnin og þjálfarar. |