JÓLAMÓTI FRESTAÐ! |
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson |
Miðvikudagur, 12. desember 2018 21:53 |
Jólamóti Ægis sem halda átti á laugardag verður frestað af óviðráðanlegum ástæðum. Búnaður í Laugardalslaug sem lyftir botni laugarinnar að hluta gaf sig og er ekki hægt að færa brúna að svo stöddu í 25m stöðu. Byrjað verður að tæma laugina á föstudag og viðgerð hefst vonandi á mánudag að lokinni bilanagreiningu. Til greina kemur að halda jólamótið laugardaginn 29. desember ef viðgerð verður lokið, en það verður þá staðfest síðar. Stjórnin. |