Við minnum á uppskeruhátíðina á laugardag |
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson |
Miðvikudagur, 11. apríl 2018 16:39 |
Uppskeruhátíð Sundfélagsins Ægis fyrir árið 2017 verður haldin laugardaginn 14. apríl í Laugalækjarskóla. Hátíðin hefst kl. 12:30 og henni líkur um kl. 14:30. Hátíðin er fyrir sundmenn félagsins og aðstandendur þeirra, allt frá Bleikjum og upp í Gullhóp.
Að venju óskum við eftir stuðningi frá foreldrum til að koma með veitingar á sameiginlegt hlaðborð. Ægir leggur til kaffi og aðra drykki.
Stjórnin. |