Dómara vantar á TYR mót |
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson |
Þriðjudagur, 04. október 2016 21:41 |
Stjórnin biðlar til þeirra Ægiringa sem hafa dómararéttindi að leggja félaginu lið á laugardag en þá verður TYR mót félagsins haldið. Félagið á fáa sunddómara og því mikilvægt að allir þeir sem vetlingi geta valdið á laugardag gefi kost á sér til dómgæslu. Vinsamlegast skráið ykkur hjá Ingibjörgu Ýri Pálmadóttur á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Stjórnin. |