banner_3.jpg
 
Sundfélagið Ægir
Gott að vita fyrir sundmót Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ingigerður   
Laugardagur, 30. september 2023 10:05

Hér er búið að taka saman frábæran lista yfir allt það sem er gott að vita fyrir sundmót.

Endilega kynnið ykkur efnið og farið yfir með sundfólkinu okkar.

Sundmót

IMG-8024

 
AÐALFUNDUR. Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ingigerður   
Laugardagur, 09. mars 2024 16:29

Þriðjudaginn 12.mars næstkomandi kl.17.30 verður haldinn aðalfundur Sundfélagsins Ægis.

Fundurinn verður haldinn í fundarsalnum á annarri hæð Laugardalslaugar í Reykjavík. Hann er haldinn á sama tíma og æfingar eru í eldri hópum félagsins og því ætti að henta vel að mæta á fund þegar verið er að skutla krökkunum á æfingu.


Dagskrá aðalfundar er sem hér segir:

1. Setning

2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.

3. Skýrsla stjórnar um liðið starfsár.

4. Reikningar félagsins lagðir fram.

5. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga. Reikningar bornir upp.

6. Lagabreytingar

7. Ákvörðun um árgjald

8. Kosningar:

  • a) Kosning formanns til tveggja ára
  • b) Kosning stjórnarmanna í laus stjórnarsæti til tveggja ára
  • c) Kosning endurskoðanda og eins til vara
  • d) Kosning eins fulltrúa til tveggja ára í SRR

9. Staðfesting á tilnefningum í foreldraráð.

10. Önnur mál. Á fundinum verður kosið um laus stjórnarsæti. Þá er formaður félagsins kosinn sérstaklega. Framboð til formanns og stjórnar má tilkynna fyrir fundinn með tölvupósti á  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .


Lög og markmið Ægis má finna með því að smella hér. Tillögur um breytingar á lögum skulu berast formanni með tölvupósti á  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  minnst þremur dögum fyrir fundinn.

Við hvetjum foreldra sundiðkenda til að mæta á aðalfundinn og taka þátt í starfi félagsins með virkum hætti.


Vonumst til að sjá sem flesta.

Stjórn Sundfélagsins Ægis.

 
Photos from RIG 2015 Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson   
Mánudagur, 19. janúar 2015 10:16

Thank you for a great swimming competition at RIG 2015. We have posted some photos on our facebook page as well as here from one of our sponsors. Thank you for a great weekend! 

Sundfélagið Ægir.

Dómarar ofl. IMG 1440 IMG 1702 IMG 1428

 
Herbergi: Emeraude 28 og gestir Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Fimmtudagur, 10. júní 2010 20:24

Verslað í Perpignan

Í gær var góður dagur. Byrjuðum hann á einni laufléttri æfingu og svo var farið í hádegismat. Eftir matinn var komið að ÞVÍ, cialis leiðinni var heitið í hið goðsagnarkennda H&M. Í strætó á leiðinni þangað eignuðumst við franska vini. Þeir hétu Alibaba og Christofer. Þeir þóttust vera sterkir og sýndu okkur upphandleggsvöðvana sína en við hristum bara höfuðið og hlógum því þeir áttu ekki séns í okkar upphandleggsvöðva.

Svo hófst leitin að H&M sem gekk misvel. Sumir ráku slóðina á lyktinni en aðrir þurftu að labba nokkra hringi og spyrja heimamenn um aðstoð. Stelpurnar misstu sig í H&M en samt mismikið. Strákarnir fengu fljótt leið á búðarápi og gáfust upp. Gaman er að segja frá því að Olga og Sigrún kláruðu innkaupin á mettíma og fóru á kaffihús og í göngutúr og komu svo aftur í H&M og þá voru Marta og Anna Guðrún á sama stað og þegar þær fóru, pharm bara með aðeins meira magn af fötum. Þær hertóku alla speglana í búðinni og var ekki eytt tíma í að bíða í röðinni að mátunarklefanum, það var bara tímasóun. Þær eru nefninlega atvinnumenn.

Lilja var dyggur aðstoðarmaður og á skilið hrós. Til þess að vera viss um að vera með nægan pening þá settist Maríanna á gólfið og hóf reikninginn. Svo fóru Steinunn, Maríanna og Karenarnar að kíkja í búðir og komu svo aftur í H&M og þar voru þær enn, Anna og Marta. Þær héldu svo heim hálf sex. Maður átti að vera kominn að strætóskýlinu í seinasta lagi kl 17.45. En Anna og Marta voru enn í H&M. Svo loks þegar klukkan var orðin sex sást glitta í þær hlaupandi með gríðarstóra poka. Sátu þá Ásta og Kristrún og biðu eftir þeim. Geislaði gleðin af þeim og strimlarnir voru margir metrar. Þær höfðu eytt fimm og hálfum tíma í að versla og var það einungis í H&M, talandi um dugnað.

Um kvöldið var svo farið á veitingastað niðri á strönd og allir eða langflestir fengu sér gúrmet pizzu. Eftir það var haldið í þessa dýrindis ísbúð og allir sáttir með daginn. Nema heimferðin hefði getað verið betri en við förum ekki nánar út í það.

Kveðja Marta, Anna Guðrún, Karen Sif, Karen, Maríanna, Steinunn og Olga

 
Úrslit frá TYR móti 2016 Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson   
Miðvikudagur, 12. október 2016 19:29

Hér að neðan má finna úrslit frá TYR móti 2016. Takk fyrir skemmtilegt mót krakkar!

Stjórn og þjálfarar.

 
«FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta»

Síða 2 af 212
 

WorldClass