Fréttir og Tikynningar :: H20 m. klór
Skriðsundsnámskeið fyrir fullorðna byrjar 15. febrúar 2016 |
|
|
Skrifað af: Rémi
|
Sunnudagur, 31. janúar 2016 17:56 |
Ægir Þríþraut heldur Skriðsundsnámskeið frá 15. febrúar. til 9. mars (samtals 8 skipti).
Kennt mánudaga og miðvikudaga kl. 20.30 til 21.30 í innilaug Laugardalslaugar.
Tvö námskeið verða í boði: 1. Fyrir byrjendur: Þeir sem eiga erfitt með að synda 25-50m skriðsund 2. Fyrir lengra komna: Þeir sem vilja bæta skriðsundstækni sína.
Kennarar: Gylfi Guðnason – Íþróttakennari og sundþjálfari Ægis-Þríþrautar
Rémi Spilliaert – Sundþjálfari.
Verð: 13.000kr. Inngangur í laugina er ekki innifallinn í námskeiðsgjaldinu.
Upplýsingar og skráning: Rémi Spilliaert -
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
- s. 665 7004 |
|
Uppskeruhátíð frestast enn ... |
|
|
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson
|
Fimmtudagur, 28. janúar 2016 20:14 |
Því miður þarf að endurskoða enn og aftur tímasetningu á uppskeruhátíð Sundfélagsins Ægis fyrir árið 2015 og nú vegna sundmóts sem yngri hópar fara á þann 6. febrúar. Uppskeruhátíðin hefur nú verið færð um einn dag til sunnudagsins 7. febrúar og fer hún fram á milli kl. 15:00 og 17:00 í sal Icepharma að Lynghálsi 13, 110 Reykjavík. Við biðjumst velvirðingar á þessum tilfærslum en þar sem þetta er aðal hátíð félagsins á hverju ári að þá er mikilvægt að sem flestir sundmenn séu viðstaddir. Þá hafa afrekssundmenn félagsins og yfirþjálfari verið á faraldsfæti í janúar.
Stjórnin. |
Óskað er eftir umsóknum um fatastyrk TYR og AquaSport |
|
|
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson
|
Fimmtudagur, 21. janúar 2016 22:02 |
Sundvöruverslunin AquaSport og TYR sundvörumerkið eru bakhjarlar Sundfélagsins Ægis. Árlega býðst sundmönnum að sækja um styrk til kaupa á TYR sundvörum hjá AquaSport. Sundfélagið velur í ár tvo sundmenn úr hópi karla og tvær sundkonur til að hljóta styrkinn. Stigahæstu einstaklingar 2015 úr hópi umsækjanda hljóta styrkina og verða nöfn þeirra tilkynnt á uppskeruhátíðinni 6. febrúar. Það eru sundmenn í flokkum Karla, viagra Kvenna, seek Pilta, pilule Stúlkna, Drengja og Telpna árið 2015 sem sótt geta um styrkina. Sótt eru um til stjórnar í tölvupósti á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
eða með öðrum skriflegum hætti.
Stjórnin |
Uppskeruhátíð frestast til 6. febrúar |
|
|
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson
|
Fimmtudagur, 21. janúar 2016 21:57 |
Uppskeruhátíðinni hefur verið frestað aftur og nú um viku til 6. febrúar. Við biðjumst velvirðingar á þessu en þetta er vegna þátttakenda sem ekki komast á áður auglýstum tímum. Hátíðin verður auglýst sérstaklega þegar nær dregur.
Stjórnin. |
Breyttir æfingatímar hjá Höfrungum í Laugardal |
|
|
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson
|
Fimmtudagur, 14. janúar 2016 21:03 |
Frá og með þriðjudeginum 19. janúar breytast æfingatímar Höfrunga í Laugardal og munu þeir hefjast kl. 15:30 alla daga, physician þ.e. mánudaga, pilule þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga. Tímatöflunni hefur verið breytt til samræmis.
Birgir Viktor, þjálfari. |
|
|
|
|
Síða 20 af 132 |