banner_11.jpg
 
Frétt


AÐALFUNDUR. Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ingigerður   
Laugardagur, 09. mars 2024 16:29

Þriðjudaginn 12.mars næstkomandi kl.17.30 verður haldinn aðalfundur Sundfélagsins Ægis.

Fundurinn verður haldinn í fundarsalnum á annarri hæð Laugardalslaugar í Reykjavík. Hann er haldinn á sama tíma og æfingar eru í eldri hópum félagsins og því ætti að henta vel að mæta á fund þegar verið er að skutla krökkunum á æfingu.


Dagskrá aðalfundar er sem hér segir:

1. Setning

2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.

3. Skýrsla stjórnar um liðið starfsár.

4. Reikningar félagsins lagðir fram.

5. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga. Reikningar bornir upp.

6. Lagabreytingar

7. Ákvörðun um árgjald

8. Kosningar:

  • a) Kosning formanns til tveggja ára
  • b) Kosning stjórnarmanna í laus stjórnarsæti til tveggja ára
  • c) Kosning endurskoðanda og eins til vara
  • d) Kosning eins fulltrúa til tveggja ára í SRR

9. Staðfesting á tilnefningum í foreldraráð.

10. Önnur mál. Á fundinum verður kosið um laus stjórnarsæti. Þá er formaður félagsins kosinn sérstaklega. Framboð til formanns og stjórnar má tilkynna fyrir fundinn með tölvupósti á  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .


Lög og markmið Ægis má finna með því að smella hér. Tillögur um breytingar á lögum skulu berast formanni með tölvupósti á  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  minnst þremur dögum fyrir fundinn.

Við hvetjum foreldra sundiðkenda til að mæta á aðalfundinn og taka þátt í starfi félagsins með virkum hætti.


Vonumst til að sjá sem flesta.

Stjórn Sundfélagsins Ægis.

 
Uppskeruhátíð Sundfélagsins Ægis fyrir árið 2023 Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ingigerður   
Sunnudagur, 18. febrúar 2024 20:06

Uppskeruhátíð Sundfélagsins Ægis fyrir árið 2023 verður haldin laugardaginn 24. febrúar nk. í sal hjá Wurth á Íslandi, Norðlingabraut 8.

Hátíðin hefst kl. 12:30 og henni lýkur um kl. 14:00. Þar veitum við verðlaun fyrir góðan árangur ársins 2023 og eigum góða stund saman. Eins og áður verður þetta Pálínuboð, það koma allir með eitthvað með sér á hlaðborð og Sundfélagið sér um drykki með.

Við hvetjum alla Ægiringa að mæta og taka þátt í þessu með okkur.


Dagskráin verður með hefðbundnu sniði:

  1. Farið yfir helstu atburði ársins 2023.
  2. Aldursflokkaviðurkenningar veittar sundmönnum fyrir árið 2023.
  3. Viðurkenningar fyrir ástundun verða veittar til sundmanna af þjálfurum.
  4. Guðrúnarbikararinn afhentur.
  5. Ægisskjöldurinn afhentur.

Til að hljóta viðurkenningu þarf sundmaður að hafa verið skráður í Sundfélagið Ægi í lok árs 2023.

Stjórn og þjálfarar.

 
Reykjavíkurmeistaramót 2024 Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ingigerður   
Sunnudagur, 14. janúar 2024 11:10

Stigahæstu rvk

Reykjavíkurneistaramót SRR fór fram um helgina í Laugardalslaug.

Það er óhætt að segja að árið byrjar vel hjá okkur en á mótinu unnum við 69 Reykjavíkurmeistaratitla, áttum fimm af stigahæsta sundfólkinu og sundmaður Reykjavíkur árið 2023 er Stefán Ingi Ólafsson. Á myndinni má sjá alla stigahæstu sundmenn mótsins.

Að auki unnum við 55 silfurverðlaun og 31 bronsverðlaun sem gera 155 verðlaun í heildina! Þvílíkur dugnaður í okkar fólki!

Reykjavíkurmeistaramótið er stigamót milli liðanna í Reykjavík og var Ægir í harðri baráttu við Ármann um titilinn en þeir höfðu betur að lokum.

Frábært mót og meiriháttar stemning í hópnum. Framtíðin er sannarlega björt hjá okkur í Sundfélaginu Ægi.

 
Vor 2024 Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ingigerður   
Þriðjudagur, 02. janúar 2024 10:35

Opnað hefur verið fyrir skráningar á og hefjast námskeið og æfingar núna strax á fyrstu 2 vikum ársins.

  • Gull, Silfur og Brons hópar hefja æfingar 2.janúar.
  • Laxar og Höfrungar hefja æfingar 3 og 4. janúar.
  • Bleikjur hefja æfingar 8.janúar.
  • Gullfiskarnir okkar hefja sitt námskeið 9.janúar.

Við hvetjum foreldara að skrá á https://www.abler.io/shop/aegir/sund og vera með sportabler appið í símanum sínum með tilkynningum á því allar æfingar koma þar inn sem og samskipti fara fram í gegnum það app.

2024 verður frábært ár í alla staði og byrjum við þetta af krafti

 
Arena - mót Ægis í 25m laug Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ingigerður   
Miðvikudagur, 04. október 2023 19:41

Arena-mót Ægis fer fram helgina 7.-8. október

Mótið verður í 4 hlutum. Annarsvegar fyrir 13 ára og eldri (hlutar 1 og 4) og 12 ára og yngri (hlutar 2 og 3).

Fatlaðir og ófatlaðir synda saman í riðlum. Synt er skv. reglum FINA og IPC.

Skráningar eru komnar inn á splash appið þar sem hægt er að sjá greinar sem sundmenn synda sem og tímaáætlun og ca lengd hluta.

Allar nánari upplýsingar um mótið eru hér

 

Við minnum alla á að skrá sig fyrir hlutverkum á mótinu inni á Sportabler spjallinu og dómarar mega endilega skrá sig hjá Ingibjörgu yfirdómara. Skráningar um dómgæslu berist til: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

unnamed 27

 
«FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta»

Síða 1 af 132
 

WorldClass