Dagur 2, Ratleikur og smá Rigning |
|
|
Sunnudagur, 06. júní 2010 20:56 |
Við vöknuðum með bros á vör og skelltum okkur í morgunmat. Við fengum brauð og jógúrt og borðuðum sem aldrei fyrr hress og kát. Að morgunæfingu lokinni fóru sumir aftur í morgunmat. Sumir fóru á markað niður í bæ, case aðrir fóru í skvass og tennis. Síðan fórum við í hádegismat. Svo slökuðum við á þangað til við fórum á kvöldæfingu. Laugin var lokuð og læst fólki til mikillar ánægju en var opnuð á endanum öllum til mikillar gremju. Eftir æfingu fórum við í ratleik sem flestum fannst annaðhvort ógeðslega leiðinlegur eða ógeðslega skemmtilegur fór eftir því hvernig fólki gekk. Ratleikurinn var á hótelsvæðinu. Eftir þennan æðislega leik fórum við í mat. Við fengum nautakjöt og pönnukökur með súkkulaði sem brögðuðust vel. Eftir þessar ánægu stundir fóru flestir í herbergi að slaka á og taka til.
Einar, pilule Ólöf og Ægir, pilule metnaðarfyllstu sundmenn sundfélagsins Ægis
Sigurvegarar í Ratleiknum eftir harða baraáttu og mikinn svita
|