Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson
|
Miðvikudagur, 11. desember 2019 14:12 |
Ægir leitar að þjálfara til að þjálfa Bleikjuhópa félagsins frá áramótum. Æfingatímar eru á mánudögum og miðvikudögum skv. æfingatöflu á frá 16:00 - 18:15 í innilaug Breiðholtslaugar. Bleikjur eru á aldrinum c.a. 6 - 10 ára, hafa kynnst því að vera í vatni, kafa og taka fyrstu sundtök t.d. í Gullfiskahópum Ægis og þurfa nú læra grunnatriðin í t.d. skrið- og baksundi. Bleikjur sem hafa náð tökum á sundgrein geta tekið þátt í C-mótum á vegum Sundráðs Reykjavíkur.
Áhugasamir hafi samband við Guðmund Svein Hafþórsson, yfirþjálfara félagsins á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
eða í síma 770-4107.
|