Bleikjusýning og Krónusund 1. maí 2019 |
|
|
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson
|
Miðvikudagur, 24. apríl 2019 18:24 |
Þann 1. maí 2019 heldur Sundfélagið Ægir upp á 92 ára afmæli félagsins.
Það er hefð fyrir því að á afmælisdegi félagsins haldi Bleikjuhópur sundsýningu og síðan verði svokallað Krónusund fyrir eldri hópa.
Krónusund er fjáröflunarsund þar sem synt er í ákveðinn tíma og sundmaður safnar áheitum á hversu marga metra hann nær að synda á þessum tíma. Lágmarks áheit er 1 kr. á hvern syntan metra. Þannig fær sundmaður sem nær að synda 1000 metra á tilskildum tíma 1000 kr. frá hverjum þeim sem heitið hafa 1 krónu á sundið, 2000 kr. hjá þeim sem heitið hafa 2 krónum á sundið. og svo framvegis. Hér er krækja á áheitablað sem sundmenn prenta út og nota til að safna áheitum en nauðsynlegt er að fá undirskrift á slíkt blað frá hverjum þeim sem heitir á viðkomandi sundmann.
Höfrungar og Laxar munu synda í 15 mínútur og Brons-, Silfur- og Gull- hópar í 30 mínútur. Skila verður inn áheitum til þjálfara í síðasta lagi á æfingu þann 30. apríl.
Bleikjusýningin hefst kl. 9:00 og Krónusundið hefst að sýningunni lokinni og verður þetta haldið í Laugardalslaug.
Þjálfarar og Foreldrafélag Ægis.
|