Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson
|
Miðvikudagur, 19. september 2018 22:28 |
Sundfélagið Ægir verður með haustfund mánudaginn 24. september kl. 19:00 á efri hæð Laugardalslaugar. Fundurinn er fyrir foreldra og aðstandendur allra sundmanna í félaginu og er tilgangur hans að kynna starfsemi vetrarins, þjálfara félagsins og áherslur í sundþjálfun allra hópa.
Dagskráin verður eftirfarandi:
1. Stjórn býður gesti velkomna 2. Kynning á starfsemi félagsins 3. Áherslur í þjálfun, markmiðssetning og helstu liðir á atburðardagatali 4. Foreldrastarf og nefndir:
- Foreldrafélag
- Fatanefnd
- Ferðanefnd
- Fjáröflunarnefnd
- Starf sunddómara
5. Kynning á fyrirhugaðri æfingaferð erlendis 6. Þjálfarar kynna sig og fara yfir markmið og verkefni sundhópa 7. Fyrirspurnir og umræður
Gert er ráð fyrir að fundi ljúki um kl. 20:00. Við vonum að sem flestir hafi tök á að koma og kynnast starfi vetrarins.
Stjórnin.
|