Hátíðarkvöldverður laugardaginn 6. maí. |
|
|
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson
|
Laugardagur, 29. apríl 2017 16:02 |
Ægiringar munu fjölmenna í hátíðarkvöldverð laugardaginn 6. maí nk. í tilefni af 90 ára afmæli félagsins. Fagnaðurinn verður í Valsheimilinu og hefst dagskráin kl. 20:00 og mun standa fram eftir kvöldi. Allir Ægiringar 18 ára og eldri eru velkomnir sem og aðrir velunnarar félagsins.
Skráning fer fram með kr. 5.900,- greiðslu sem leggst á reikning félagsins 0115-26-8888, kt. 420369-4929 í síðsta lagi miðvikudaginn 3. maí. Vinsamlegast setjið "Afmæli" í skýringu.
Afmælisnefndin.
|