Jólamót Ægis verður á sunnudag! |
|
|
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson
|
Þriðjudagur, 08. desember 2015 22:01 |
Jólamót Ægis verður haldið sunnudaginn 13. desember, í Laugardalslaug. Mótið sem jafnframt er annað Stigamót vetrarins hefst með upphitun kl. 9:30 og stendur til uþb. 12:30. Bleikjur mæti 10:00.
Þetta er skemmtilegt innanfélagsmót þar sem flestir sundhópar taka þátt og börn í yngstu hópunum fá að stíga sín fyrstu spor á sundmóti. Þátttakendur verða úr Bleikjum, Löxum, Höfrungum, Brons, Silfur og Gull hópum. Þjálfarar ræða við sundmenn um þátttöku og greinar og senda skilaboð til foreldra.
Dagskráin verður eftirfarandi (tímasetningar geta þó hliðrast):
09:30 Upphitun
10:00 Stigamót hefst
25 metra baksund (10 ára og yngri)
50 metra baksund (14 ára og yngri)
100 metra baksund (11 ára og eldri)
100 metra fjórsund (opinn flokkur)
10:45 Sundsýning Bleikja
25 metra bringusund (10 ára og yngri)
50 metra bringusund (14 ára og yngri)
100 metra bringusund (11 ára og eldri)
25 metra skriðsund (10 ára og yngri)
50 metra skriðsund (14 ára og yngri)
100 metra skriðsund (9 ára og eldri)
1500 metra skriðsund karla (11 ára og eldri)
12:30 Móti lýkur.
|
|
|
Tímataka og dómgæsla verður á mótinu.
|