banner_8.jpg
 
Aðalfundur Sundfélagsins Ægis, 21. apríl Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson   
Mánudagur, 13. apríl 2015 07:15

Aðalfundur Sundfélagsins Ægis verður haldinn þriðjudaginn 21. apríl kl. 20:00 á efri hæð Laugardalslaugar. 

Dagskrá aðalfundar er sem hér segir:
   1. Setning
   2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
   3. Skýrsla stjórnar um liðið starfsár.
   4. Reikningar félagsins lagðir fram.
   5. Umræður um skýrslu og reikninga. Reikningar bornir upp. 
   6. Lagabreytingar
   7. Ákvörðun um árgjald
   8. Kosningar
       a) Kosning formanns til eins árs í senn.
       b) Kosning fjögurra stjórnarmanna til tveggja ára.
       c) Kosning endurskoðanda og eins til vara
       d) Kosning eins fulltrúa til tveggja ára í SRR
   9. Staðfesting á tilnefningum í foreldraráð.
 10. Önnur mál.

Lög og markmið félagsins má finna á heimasíðu Ægis - www.aegir.is.

Auk sundþjálfunar byggir starfsemi Ægis alfarið á vinnuframlagi foreldra og velunnara þess. Sundfélagið Ægir leitar sífellt að fólki sem er reiðubúið til að taka að sér stjórnarstörf, tæknistörf, dómgæslu og vinnu í foreldraráði. Vinna í foreldraráði felur m.a. í sér fararstjórn í æfingaferðum, umsjá fjáröflunar og að halda utan um sundhópa, t.d. félagslega. Leitað er að tveimur einstaklingum fyrir hvern sundhóp félagsins til að taka að sér störf í foreldraráði. Árlega eru auglýst dómaranámskeið sem gefa réttindi til dómgæslu á sundmótum. Foreldrar eru hvattir til að sækja þau og í framhaldinu að dæma fyrir félagið. 

Foreldrar og aðrir þeir sem vilja gefa kost á sér í fyrrgreind störf vinsamlegast sendið tölvupóst á  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

Stjórnin.

 
 

WorldClass