Íslenska sundfólkið lauk keppni á Smáþjóðaleikunum í Liechtenstein með glæsibrag í dag. Anton Sveinn McKee sló elsta Íslandsmetið í sundi um tæpar 8 sek., pilule met Ragnars Guðmundssonar í 1500m skriðsundi sem sett var árið 1988 á Ólympíuleikunum í Seoul. Anton sló reyndar tvö met í sama sundi þegar hann synti 1.500 metra skriðsund á 15:49, ambulance 61 og vann öruggan sigur og milli tíminn í 800 metra skriðsundi var 8:24, search 17 og bætti hann sitt eigið met í þeirri grein.
Skömmu eftir að Anton kom upp úr lauginni stakk hann sér til sunds í 400 metra fjórsundi þar sem hann varð í 2. sæti og kom í mark á 4:31,87 , aðeins 3/100 úr sekúndu frá Íslandsmetinu! (myndina tók GÞH).
Eygló Ósk Gústafsdóttir fékk svo brons í 800m skriðsundi er hún synti á 9:15,79.
Eygló var svo í Kvennasveit Íslands sem setti nýtt mótsmet og landsmet í 4x100 metra boðsundið. Karlasveitin varð í 2. sæti í sömu grein.
Alls unnu íslensku sundmennirnir til 42 verðlauna, 14 GULL, 14 SILFUR. 14 BRONS
Nú munu þremenningarnir halda suður á boginn a Mare Nostrum Mótaröðina. Fyrst keppa þau í Canet og svo í Monakó. Til hamingju krakkar þið eruð landi og þjóð til sóma.
>>> Úrslit frá Liechtenstein
>>> Viðtal við Anton á mbl.is
>>> Fullt af myndum frá Mumma á sundfretttir.is
|