Byr styður Jakob fram að ÓL 2012 |
|
|
Föstudagur, 11. febrúar 2011 21:46 |
Byr og Jakob Jóhann Sveinsson skrifuðu í gær undir samstarfssamning til 18 mánaða en Jakob stefnir að sínum fjórðu ólympíuleikum í London á næsta ári.
Jakob setti sitt fyrsta Íslandsmet í fullorðinsflokki árið 1999. Eftir það varð ekki aftur snúið og hefur hann mætt á hvert stórmótið á fætur öðru fyrir Íslands hönd. Jakob keppti til að mynda á ólympíuleikunum í Sydney árið 2000, viagra Aþenu árið 2004 og Peking árið 2008. Hann hefur lengst komist í undanúrslit á þremur heimsmeistaramótum og jafn mörgum Evrópumeistaramótum. Þá hefur hann komist tvisvar sinnum í úrslit og fimm sinnum í undanúrslit á Evrópumeistaramóti í 25 m. laug.
Samstarfið við Byr á eftir að hjálpa honum mikið við það að þurfa ekki að hafa fjárhagsáhyggjur vegna keppnis- og æfingaferða erlendis
>>> Nánar á Facebook síðu Kobba
|