Æfingar hefjast hjá öllum hópum |
|
|
Miðvikudagur, 05. janúar 2011 08:53 |
Æfingar fara á fullt skrið á ný í þessari viku í öllum hópum. Allir eiga að mæta í þá hópa sem þeir voru í fyrir áramót.
Sundskólinn heldur áfram með Gullfiskanámskeið sem hófst í nóvember, cheap nýtt námskeið hefst svo í febrúar. Nýju skriðsundsnámskeiðin hjá Rémi eru fullbókuð og byrjað að skrá á næsta námskeið. Bleikjurnar hjá Rebekku og Helga fara á flot í dag og allir Laxarnir farnir að sprikkla bæði í Breiðholti og Laugardal. Höfrungar og Bronsarar eru mættir í undirbúning fyrir Reykjavíkurmeistaramót og Póló æfingar hefjast í þessari viku og ekki má gleyma Görpunum sem gáfu ekkert eftir yfir jólin og syntu 4.5 km æfingu milli jóla og nýárs.
Á meðan yngri hóparnir tóku kærkomið frí milli jóla og nýárs syntu Stóru krakkarnir í Gull og Silfur-hópum eins og skrattinn væri á eftir þeim í svo kallaðri HELL WEEK. Þeir sem syntu mest fóru um 85 Km á einni viku og margir syntu vel yfir 70 Km.
Mörg skemmtileg verkefni eru á næstunni. Reykjavík International Games hefjast eftir rétt rúma viku og i lok janúar verður Rykjavíkurmeistaramótið, medicine Í febrúar eru Gull-mótið og Stigamót og í mars Bikarkeppni og Áskorendamót. Sjá nánar í Atburðadagatali Ægis hér í vinstri stikunni.
|